Háskóli, háskóli, háskóli!!!

Jæja þá er komin febrúar, reyndar búnir 6 dagar af honum og febrúar er mánuðurinn sem ég fer alltaf að hugsa fram í tímann um hvað ég á að gera í nánustu framtíð. Mitt umhugsunarefni þennan febrúar er það hvað ég eigi nú að læra í framtíðinni!

Mér langar að fara í háskóla í haust en það er á dagsskránni hjá mér að bíða fram á þarnæsta haust, njóta tímans með barninu mínu og vinna í eitt og hálft ár áður en ,,alvaran" tekur við , þ.e. skólinn.

Ég get í raun ekkert ákveðið mig hvað ég vil gera, var eiginlega komin á þá niðurstöðu að fara í hjúkrun í HA og leist bara fínt á það.

EN... mér langar svo hrikalega að fara í sagnfræði þar sem ég elska sögu og allt í kringum hana, en veit ekki hvort það myndi heilla mig, og hef alltaf verið rosalega skotin í þeirri hugmynd um að fara í stjórnmálafræði, en mig hreinlega langar alls ekki að flytja til Reykjavíkur hef prófað það og var alls ekki að fíla mig þar, spurning um hvort þetta komi bráðum til Akureyrar, þá væri ég líkleg til að skella mér annaðhvort í sagnfræði eða stjórnmálafræði.

Hjúkrun samt heillar mig því þá allavega myndi ég vita við hvað ég myndi vinna við, veit svo sem ekkert hvar ég ætti að vinna ef ég myndi útskrifast sem sagnfræðingur eða stjórnmálafræðingur en það myndi svo bara koma.

Nú streyma til mín bæklingar frá hinum og þessum háskóla því þar sem ég var að útskrifast loksins úr framhaldsskóla þá keppast þeir um nemendur og fékk einn frá háskólanum og Hvanneyri og leist helvíti vel á heilbrigðisdeildina þar

Úff..... hef áhuga fyrir svo allt of mörgu að ég snýst bara í hringi!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Emil Örn Kristjánsson

Langi þig svona mikið til að læra gætir þú t.a.m. lært að segja "mig langar...."

Emil Örn Kristjánsson, 6.2.2008 kl. 15:45

2 Smámynd: Guðrún Fanney Einarsdóttir

haha....ég er með þágufallssýki;)

Guðrún Fanney Einarsdóttir, 6.2.2008 kl. 19:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband