Búlgaría og fimbulfamm!!

Jæja nú er ég ekkert smá ánægð með lífið:) Fann LOKSINS spilið sem ég er búin að vera að leita að í svo langan tíma!!Það er spilið FIMBULFAMM!!Búin að  hringja í útgáfufyrirtæki, fara í allar búðir sem selja spil og svoleiðis. En loksins sagði mín kæra vinkona Árdís Inga að mamma hennar og Pabbi ættu spil austur á Raufarhöfn inn í GEYMSLU!! Já sæll, góðan daginn komdu með það til Akureyrar NÚNA!! Svoleiðis að núna er ég búin að fá spilið og á morgun verður tekið spilakvöld!! þetta er sko án efa skemmtilegasta spil í heimi, og get ekki beðið eftir morgundeginum;)

Við ,,hjónin" höfum ákveðið að skella okkur til Búlgaríu 18. ágúst - 2. september;) barnlaus ferð að sjálfsögðu, ætla að bíða betri tíma að fara með litlu bolluna mína, hana Kristínu Andreu til sólarlanda þangað til að hún verður eldri. Mamma og tengdó ætla að skipta með sér tímanum að passa dúlluna og það verður eflaust rifist um hana ;) enda er hún hvers manns hugljúfi. Við erum þrenn pör sem erum að fara sem eigum börn, og ætlum við öll að skilja börnin eftir heima. Veit ekki hvort ég get látið litlu prinsessuna mína svona lengi af hendi en maður verður að lyfta sér upp endrum og sinnum. Man hérna þegar ég var á hennar aldri fóru mamma og pabbi stundum til útlanda og skildu mig eftir og ég hlaut engan skaða af því;)

Ýr vinkona dró mig í boxtíma áðan ÚFF!!! á mjög erfitt með að skrifa þetta blogg, mig verkjar svo í hendurnar. Rosaleg viðbrigði þar sem ég hef ekkert hreyft mig í eitt og hálft ár og er með 16 aukakíló á mér eftir barnsburð!! haha.....enda er verið að ná þeim af mér stöðugt núna, þó það séu nú bara þrir mánuðir síðan prinsessan fæddist, maður er nagli!!;)

Allavega komið nóg af blaðri!!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Fimbulfamb er í uppáhaldi hjá einnu dóttir okkar, hún er orðin 26 ára en elskar að spila.  Box ? mér þykir þú dugleg.  Ég er líka með 15 kíló sem ég þarf að losa mig við, hef svo lítið getað hreyft mig í vetur út af mjöðminni, vona að ég lagist með hækkandi sól.

Ásdís Sigurðardóttir, 20.2.2008 kl. 20:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband